Myndavél; húrra!
Writing about web page http://blogs.warwick.ac.uk/vidarthorsteinsson/gallery/krakkarnir_a_k24/
Þá er ég búinn að kaupa mér sk. 'stafræna' (e. digital) myndavél; af gerðinni Sony T1. Þetta er mikið þing, og hefur þegar gagnast mér vel. Sjáið nú t.d. endilega myndirnar sem er linkað í hér að ofan, ha, þetta eru myndir sem ég tók nú á dögunum!Á sunnudagskvöldið fórum við héðan nokkur úr húsinu á sk. 'uppistand' (e. stand-up) og var þar á ferðinni hann Stuart Lee, sem er nokkuð þekktur í bransanum, er mér sagt. En þetta var alveg bráðskemmtilegt og hann sagði fullt af góðum bröndurum, m.a. um hinn svokallaða '11. september' (e. nine-eleven) og var almennt svona frekar vinstri-pólitískur sem er gott.
Ég er á leiðinni til London í kvöld og verð í eina nótt, ætla að hitta Orra bróður og fjölskylduna hans, en þau eru í 'millilendingu' (e. stop-over) á leið sinni til Nýja Sjálands þar sem þau munu búa næsta árið. En vitiði hver ætla að leigja íbúðina þeirra á meðan? Getraun!
Sjáumst geðveikt hress.
Colin
Loading…
BjoKid
getur verið að nöfn leigjendanna byrji bæði á Ó? En gælunöfnin á O og Ó...
Eru verðlaun?
01 Feb 2005, 14:58
olla
og gæti verið að þetta væri skemmtilegasta fólk í heimi í stærstu íbúð í heimi???
03 Feb 2005, 16:41
Add a comment
You are not allowed to comment on this entry as it has restricted commenting permissions.