All entries for Saturday 22 January 2005

January 22, 2005

Lesbíu– og femínistavor!

Writing about web page http://www.theory.org.uk/ctr-butl.htm

Vei! Það er aldeilis von á góðu hér í Warwick-skíri á vordögum, því góðir gestir munu sækja oss heim. Þar á meðal eru:
a. Heimspekingurinn, kynjafræðingurinn, femínistinn og vinstri-gúrúið Judith Butler kemur hingað í byrjun maí til að tala um “Torture and The Ethics of Photography”, þ.e. um Abu Ghraib-pyntingarnar og slíkt … ég hlakka ótrúlega mikið til enda hef ég verið að lesa svolítið eftir Butler að undanförnu og ég tel að hún sé einn merkasti vinstri-intelektúall okkar daga. Ég vitnað nokkuð í bók hennar Subjects of Desire í Hegel-ritgerðinni minni.
b. Trúbadúrinn og trukkalesbían Ani DiFranco spilar í Warwick Arts Centre í mars … það verður nú gaman að sjá hana spila þótt ég sé að vísu ekki feykilega hrifinn af alveg öllu hennar stöffi, en það má segja að hún sé svona … hm Judith Butler tónlistarheimsins? Allavega, mjög flott gella, og það er vitnað í hana í byrjuninni á uppáhaldsbókinni minni … vitiði hvaða bók það er?
En á meðan ég man, hefur einhver séð grínseríuna ‘Little Britain’? Það er ekkert smá fyndið. Mæli með Little Britain.
Ykkar,
COLIN

January 2005

Mo Tu We Th Fr Sa Su
Dec |  Today  | Feb
               1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31                  

Search this blog

Galleries

Most recent comments

  • Halló? Er einhver heima? by thors on this entry
  • elsku viðar minn. Það eru mjög flottar myndirna… by Hrafnhildur on this entry
  • og gæti verið að þetta væri skemmtilegasta fólk í heimi í stærstu í... by olla on this entry
  • getur verið að nöfn leigjendanna byrji bæði á Ó? En gælunöfnin á O … by BjoKid on this entry
  • Hæ krakkar … sakna ykkar allra. by Haukur Már on this entry

Blog archive

Loading…
Not signed in
Sign in

Powered by BlogBuilder
© MMXII