All entries for Monday 17 January 2005

January 17, 2005

Sorrí maður

Það er bara búið að vera svo mikið að gera. Í dag er ég með presentasjón um Listaverkið á tímum fjöldaframleiðslu sinnar eftir Walter Benjamin, og svo á miðvikudaginn þarf ég að skila Hegel-ritgerðinni minni góðu, fyrsta ritverkinu sem ég læt frá mér við þennan skóla. Það verður nú spennandi að sjá hvernig það leggst í Prof. Houlgate. Erfitt er um slíkt að spá.
Á föstudaginn var ég næstum því farinn á tónleika á campus með hljómsveitinni ‘Fightstar’ en söngvari og aðalmaður hennar er enginn annar en Charlie úr ‘Busted’ – unglingarokksveitinni sem lagði upp laupana sama dagog þessir tónleikar! Whoa! Orðið á götunni er einmitt að Charlie hafi fundist Busted hefta listrænan metnað sinn, sem hann telur að Fightstar þroski betur. En ég vara bara of þreyttur og þurfti að spara orkuna fyrir hús-partíið á laugardaginn.
Dagskrá laugardagsins byrjaði með sk. ‘Ann Summers’ partíi … hafiði heyrt um það? Þetta er svona eins konar Tupperware partí nema að varningurinn er allur kynferðislegs eðlis, þ.e. kynþokkafull nærföt, hjúkrunarkonubúningar, víbratorar og slíkt. En þetta var altso bara fyrir stelpurnar svo við strákarnir þurftum að fara á pöbbinn (Star and Garter) á meðan þetta reið yfir. Þetta er það sem Bretar hafa gaman af.
Ég er búinn að kaupa mér miða til Edinborgar þann 9.–12. febrúar, að heimsækja Sölva, Helgu Soffíu, Öglu og Steinar Braga. Sé ég ykkur fleiri þar?
Lofa að skrifa aftur fljótt.
Ykkar,
Viðar

January 2005

Mo Tu We Th Fr Sa Su
Dec |  Today  | Feb
               1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31                  

Search this blog

Galleries

Most recent comments

  • Halló? Er einhver heima? by thors on this entry
  • elsku viðar minn. Það eru mjög flottar myndirna… by Hrafnhildur on this entry
  • og gæti verið að þetta væri skemmtilegasta fólk í heimi í stærstu í... by olla on this entry
  • getur verið að nöfn leigjendanna byrji bæði á Ó? En gælunöfnin á O … by BjoKid on this entry
  • Hæ krakkar … sakna ykkar allra. by Haukur Már on this entry

Blog archive

Loading…
Not signed in
Sign in

Powered by BlogBuilder
© MMXII