All entries for January 2005

January 27, 2005

Garden State

Ég sá loksins Garden State áðan, verð að mæla eindregið með henni. Frábær mynd með svona gamaldags frásagnarmátti; ekkert verið með einhverjar voða flottar fléttur, heldur einbeitt sér að góðri persónusköpun. Þetta er fyrsta myndin sem Zach Braff leikstýrir, og það er ekki hægt annað en að dást að rólegheitunum sem einkennir myndina. Það er aldrei verið að henda einhverju í áhorfandann til þess að ná athygli hans. Leikurinn í myndinni er einnig mjög lágstemmdur, sem hentar þema myndarinnar vel. Virkilega ánægjulegt að þessi myndi skuli vera svona góð, ég var búinn að heyra svo mikið um hana; þannig að ég óttaðist að ef til vill stæði myndin ekki undir væntingum. En Garden State gerði það svo sannarlega!

Sá ,,Team America: World Police" um daginn og er enn með eitt laganna á heilanum: ,, America, fuck yeah" ! Annars olli hún, mér smá vonbrigðum, bjóst við heildstæðari mynd frá þessum strákum. Engu að síður eru mjög fyndin atriði í henni.

Var að panta á Amazon í dag, það er útsala; keypti aðeins fleira en ég ætlaði mér, m.a Amelie, Citizen Kane, Farenheit 451, Beatles Anthology, Gone with the Wind, ofl.


January 13, 2005

Fimmtudagur

,,Ég er bara lítill strákur og ég stika yfir holtið''

Mæli með Diarios de motocicleta(Vélhjóladagbækur), Enduring Love og I Heart Huckabees.

Ég er að reyna basla þessari ritgerð saman; þurfti einnig í dag að leggja fram tillögu um lokaritgerð. ,,Bítlamyndirnar og Bítlarnir" er viðfangsefnið sem ég valdi mér! Ákvað að velja mér breskt viðfangsefni og ákvað að taka þá sem ég hef áhuga á. Var reyndar um tíma að spá í að skrifa um Frank Capra, en ákvað þetta svo að lokum.

Þetta veitir mér góða afsökun til að fara Liverpool, og einnig til að fara á Abbey Road.


January 2005

Mo Tu We Th Fr Sa Su
Dec |  Today  | Feb
               1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31                  

Search this blog

Galleries

Most recent comments

  • Til hvers að hafa bloggsíðu ef maður skrifar ekkert á hana? by Jakob on this entry
  • Ég elska og hata flest alla jafnt, hata samkynhneigða ekkert meira … by Marvin on this entry
  • Jaxi, þú ert þá á lífi! Ég hélt að þú værir farinn yfir móðuna mikl… by on this entry
  • Marvin, mér leiðist þetta hatur þitt í garð samkynhneigðra. Þú ert … by Jakob on this entry
  • a by m on this entry

Blog archive

Loading…
Not signed in
Sign in

Powered by BlogBuilder
© MMXII