Mánudagur!
Ég er vinna við ritgerðirnar mínar, þó aðallega ritgerðina fyrir textagreiningu. Ég fór áðan og notaði Power DVD forritið og náði í myndir úr kvikmyndunum sem ég er að fjalla um. Reyndar er ég með Power DVD í tölvunni minni en engan dvd spilara; þetta er einhvað sem ég þarf að bæta úr þegar ég kem heim um jólin, nenni ekki að gera það hér. Panos nágranni minn fór í dag, heim til sín og hann skildi eftir jógúrt handa mér og egg, þannig að heimfarir fólks koma sér að góðum notum. Reyndar fer enski nágranni minn líka af landi brott í Desember líka, en hún fer til Ástralíu; mig langar til Ástralíu. Ég þarf reyndar að fara til Írlands eftir áramót eftir að hafa lesið hvað Bristol krakkarnir borguðu fyrir miðana sína þangað. Það er ansi gott að vakna í Desember við það að sólin skín inn um gluggann!Hérna er tengill, skemmtilegt atvik sem gerðist á ísland: link
Loading…
Jóhanna
Við ætlum sennilega til Írlands 21. til 23. janúar, held að það kosti 9 pens aðra leið og svo skatturinn, þannig að alls er það 30 pund.
Djöfulsins handboltapakk maður.
07 Dec 2004, 09:12
Add a comment
You are not allowed to comment on this entry as it has restricted commenting permissions.