All entries for Saturday 11 December 2004
December 11, 2004
Laugardagur
Þegar ég lít út um gluggann er mjög fallegt gluggaveður, sól og blíða; ég er ekki viss að það sé eins hlýtt og það sýnist. Af hverju getur Ísland ekki verið land sólarinnar, mig langar helvíti mikið að fara í sól núna. Indland kemur upp í hugann eða Nýja Sjáland ellegar Suður-Afríka. Ég er orðinn hálf- öfundsjúkur út fólkið sem er að fara til landa þar sem er gott veður. Ísland er hefur reyndar þann kost að það er oftast gott að horfa á sjónvarpið, þar sem það er dimmt úti og skín þar af leiðandi ekki á skjáinn. Reyndar verður gott að vera heitt að næturlagi, Bretar kunna ekki að einangra húsin sín.En ég þarf víst að taka rútu frá Coventry kl 7 á þriðjudaginn til að fara á flugvöllinn; Ég hlakka ekki að að þurfa að vakna svona snemma.
Sá Finding Neverland í vikunni, mjög góð mynd. Svo fór ég og sá The Incredibles í gær, ansi hreint gaman að henni.
Please wait - comments are loading
Loading…