All entries for Saturday 05 March 2005
March 05, 2005
Laugardagur
Það er dálítið langt síðan ég bloggaði síðast, orsökin á því er að ég hef verið upptekinn og einnig að ég er hvíldrækinn. Í vikunni horfði ég á þrenningu Fassbinders um 6. áratuginn í Vestur-Þýskalandi, þetta eru myndirnar: The Marriage of Maria Braun, Lola og Veronika Voss . Lola, má segja hafi þurft að gjalda fyrir það að ég sá Lolu eftir Demy fyrir stuttu, en það er meistaraverk, reyndar er óbeint framhald hennar Regnhlífarnar í Cherbourg jafnvel betri ( hún er mjög óvenjuleg söngvamynd). En Fassbinder ku hafa verið mikill aðdáandi franskra kvikmynda.
Ég sá loksins Scarface frá 1932, sem var leikstýrð af Howard Hawks en framleidd af Howard Hughes. Mögnuð hasarmynd, ótrúlega þétt mynd með mikið af ofbeldi, merkilegt að hún hafi komist í gegnum í kvikmyndaeftirlit.
Á fimmtudaginn fékk ég tvenn ný gleraugu, sem mér þótti ansi gaman þar sem ég hef ekki fengið mér ný gleraugu síðan 1998.
Ég horfði á Les 400 Coupe (400 Blows) í gær, en það var fyrsta myndin í fullri lengd sem Truffaut leikstýrði og byggir myndin að sumuleiti á hans eigin ævi. Frábær mynd, endirinn er hreint út sagt magnaður. Ég horfði á aðra Truffaut mynd um síðustu helgi sem ég keypti af amazon, Jules et Jim, hún er einnig mjög góð mynd. Seinna í dag (eða á morgun) er ég að fara horfa á Tirez le Pianiste ( Shoot the Pianist) sem Truffaut leikstýrði árið 1960, þetta er hluti af heimildarvinnu fyrir ritgerð sem ég þarf að skila í Apríl.
Ég fór þrisvar í bíó í vikunni, ég sá Wes Anderson myndina Life Aquatic, sem stóðst fyllileg þær væntingar sem ég gerði til hennar. Ég ánægður með að Anderson var ekkert að reyna gera nákvæmlega sömu hlutina og hann gerði í The Royal Tenenbaums; Anderson heldur þó alveg sínu stíll jafnvel þó hann sé að prófa nýja hluti. Tónlistin í myndinni er frábær. Svo fór ég á Ray, Jamie Foxx er virkilega góður í hlutverki Ray Charles en myndin sem slík er ekkert meistaraverk. Hún er alls ekkert slæm, bara eins og oft vill verða með myndir sem byggja á ævi frægra einstaklinga þá er einfaldað hlutina um of. Einnig er ákveðin atriði í myndinni sem passa bara ekki inn í heildarstíll myndarinnar eins og t.d þegar Ray Charles er að losa sig við eiturlyfin úr líkamanum. Á fimmudaginn var síðan farið á Faust í leikstjórn F.W Maurnau frá 1926, með undirspili í bíóinu. Þetta var byggt á Goethe útgáfunni af sögunni, ég hrifnari af Marlowe útgáfunni. Engu að síður var þetta skemmtileg upplifun.
Luke Moore skoraði sitt fyrsta mark í dag, vonandi er þetta það fyrsta af mörgum.
Please wait - comments are loading
Loading…