March 10, 2005

Hafnarbolti

,,Hafnarbolti er lágséttar-lafsa útgáfa af Krikket" Ég hef tekið mér smá skáldaleyfi en svona hljómaði mjög skemmtileg móðgun sem ég heyrði í kvöld!

March 05, 2005

Laugardagur

Það er dálítið langt síðan ég bloggaði síðast, orsökin á því er að ég hef verið upptekinn og einnig að ég er hvíldrækinn. Í vikunni horfði ég á þrenningu Fassbinders um 6. áratuginn í Vestur-Þýskalandi, þetta eru myndirnar: The Marriage of Maria Braun, Lola og Veronika Voss . Lola, má segja hafi þurft að gjalda fyrir það að ég sá Lolu eftir Demy fyrir stuttu, en það er meistaraverk, reyndar er óbeint framhald hennar Regnhlífarnar í Cherbourg jafnvel betri ( hún er mjög óvenjuleg söngvamynd). En Fassbinder ku hafa verið mikill aðdáandi franskra kvikmynda.
Ég sá loksins Scarface frá 1932, sem var leikstýrð af Howard Hawks en framleidd af Howard Hughes. Mögnuð hasarmynd, ótrúlega þétt mynd með mikið af ofbeldi, merkilegt að hún hafi komist í gegnum í kvikmyndaeftirlit.
Á fimmtudaginn fékk ég tvenn ný gleraugu, sem mér þótti ansi gaman þar sem ég hef ekki fengið mér ný gleraugu síðan 1998.
Ég horfði á Les 400 Coupe (400 Blows) í gær, en það var fyrsta myndin í fullri lengd sem Truffaut leikstýrði og byggir myndin að sumuleiti á hans eigin ævi. Frábær mynd, endirinn er hreint út sagt magnaður. Ég horfði á aðra Truffaut mynd um síðustu helgi sem ég keypti af amazon, Jules et Jim, hún er einnig mjög góð mynd. Seinna í dag (eða á morgun) er ég að fara horfa á Tirez le Pianiste ( Shoot the Pianist) sem Truffaut leikstýrði árið 1960, þetta er hluti af heimildarvinnu fyrir ritgerð sem ég þarf að skila í Apríl.
Ég fór þrisvar í bíó í vikunni, ég sá Wes Anderson myndina Life Aquatic, sem stóðst fyllileg þær væntingar sem ég gerði til hennar. Ég ánægður með að Anderson var ekkert að reyna gera nákvæmlega sömu hlutina og hann gerði í The Royal Tenenbaums; Anderson heldur þó alveg sínu stíll jafnvel þó hann sé að prófa nýja hluti. Tónlistin í myndinni er frábær. Svo fór ég á Ray, Jamie Foxx er virkilega góður í hlutverki Ray Charles en myndin sem slík er ekkert meistaraverk. Hún er alls ekkert slæm, bara eins og oft vill verða með myndir sem byggja á ævi frægra einstaklinga þá er einfaldað hlutina um of. Einnig er ákveðin atriði í myndinni sem passa bara ekki inn í heildarstíll myndarinnar eins og t.d þegar Ray Charles er að losa sig við eiturlyfin úr líkamanum. Á fimmudaginn var síðan farið á Faust í leikstjórn F.W Maurnau frá 1926, með undirspili í bíóinu. Þetta var byggt á Goethe útgáfunni af sögunni, ég hrifnari af Marlowe útgáfunni. Engu að síður var þetta skemmtileg upplifun.

Luke Moore skoraði sitt fyrsta mark í dag, vonandi er þetta það fyrsta af mörgum.


February 21, 2005

Myndir

Ég bætti inn nokkrum myndum úr Coventry og einni af Lakeside.

February 17, 2005

F

Hummæævarðandihittææsleppumþví

February 10, 2005

Stones

'I shouted out: "Who killed the Kennedys?" when after all it was you and me.'

February 09, 2005

Öskudagur

One plus One link
Mæli með henni, Godard og Stones! En One plus One er Godard útgáfan.

link

Það eiga allir að sjá þessa mynd, epísk stórmynd.

link

Aðdáendur Moulin Rouge ættu að hafa gaman að þessari mynd, sem var fyrsta myndin sem Renoir gerði þegar hann snéri aftur 1955. Hann flutti þó aldrei alfarið til Frakklands.

Ég sá Nelson Mandela flytja ræðu um daginn… mogginn sagði frá ræðunni í ,,fólkið"!!

Íslenskir fjölmiðlar virðast aldrei fjalla um neitt sem skiptir máli, hverjum er ekki sama hvernig ríkistjórnin laug; ÞAÐ VITA ALLIR AÐ ÞEIR LUGU!!

Hvernig væri að fjalla um fólkið sem er að deyja í Írak, eða þá 6000 einstaklinga sem deyja á hverjum degi í Afríku. Nei, fjöllum frekar um Hallærishóruna sem á að heita forsætisræðherra; skömm fyrir íslensku þjóðina að framsókn skuli enn vera til.
Það er líka mikilvægara að fjalla um hvort skjár einn megi senda út á fótbolta með enska þuli…

Til hamingju með Öskudaginn.. hin mjög svo kaþólska íslenska þjóð fagnar innilega..


January 27, 2005

Garden State

Ég sá loksins Garden State áðan, verð að mæla eindregið með henni. Frábær mynd með svona gamaldags frásagnarmátti; ekkert verið með einhverjar voða flottar fléttur, heldur einbeitt sér að góðri persónusköpun. Þetta er fyrsta myndin sem Zach Braff leikstýrir, og það er ekki hægt annað en að dást að rólegheitunum sem einkennir myndina. Það er aldrei verið að henda einhverju í áhorfandann til þess að ná athygli hans. Leikurinn í myndinni er einnig mjög lágstemmdur, sem hentar þema myndarinnar vel. Virkilega ánægjulegt að þessi myndi skuli vera svona góð, ég var búinn að heyra svo mikið um hana; þannig að ég óttaðist að ef til vill stæði myndin ekki undir væntingum. En Garden State gerði það svo sannarlega!

Sá ,,Team America: World Police" um daginn og er enn með eitt laganna á heilanum: ,, America, fuck yeah" ! Annars olli hún, mér smá vonbrigðum, bjóst við heildstæðari mynd frá þessum strákum. Engu að síður eru mjög fyndin atriði í henni.

Var að panta á Amazon í dag, það er útsala; keypti aðeins fleira en ég ætlaði mér, m.a Amelie, Citizen Kane, Farenheit 451, Beatles Anthology, Gone with the Wind, ofl.


January 13, 2005

Fimmtudagur

,,Ég er bara lítill strákur og ég stika yfir holtið''

Mæli með Diarios de motocicleta(Vélhjóladagbækur), Enduring Love og I Heart Huckabees.

Ég er að reyna basla þessari ritgerð saman; þurfti einnig í dag að leggja fram tillögu um lokaritgerð. ,,Bítlamyndirnar og Bítlarnir" er viðfangsefnið sem ég valdi mér! Ákvað að velja mér breskt viðfangsefni og ákvað að taka þá sem ég hef áhuga á. Var reyndar um tíma að spá í að skrifa um Frank Capra, en ákvað þetta svo að lokum.

Þetta veitir mér góða afsökun til að fara Liverpool, og einnig til að fara á Abbey Road.


December 11, 2004

Laugardagur

Þegar ég lít út um gluggann er mjög fallegt gluggaveður, sól og blíða; ég er ekki viss að það sé eins hlýtt og það sýnist. Af hverju getur Ísland ekki verið land sólarinnar, mig langar helvíti mikið að fara í sól núna. Indland kemur upp í hugann eða Nýja Sjáland ellegar Suður-Afríka. Ég er orðinn hálf- öfundsjúkur út fólkið sem er að fara til landa þar sem er gott veður. Ísland er hefur reyndar þann kost að það er oftast gott að horfa á sjónvarpið, þar sem það er dimmt úti og skín þar af leiðandi ekki á skjáinn. Reyndar verður gott að vera heitt að næturlagi, Bretar kunna ekki að einangra húsin sín.
En ég þarf víst að taka rútu frá Coventry kl 7 á þriðjudaginn til að fara á flugvöllinn; Ég hlakka ekki að að þurfa að vakna svona snemma.
Sá Finding Neverland í vikunni, mjög góð mynd. Svo fór ég og sá The Incredibles í gær, ansi hreint gaman að henni.

December 06, 2004

Mánudagur!

Ég er vinna við ritgerðirnar mínar, þó aðallega ritgerðina fyrir textagreiningu. Ég fór áðan og notaði Power DVD forritið og náði í myndir úr kvikmyndunum sem ég er að fjalla um. Reyndar er ég með Power DVD í tölvunni minni en engan dvd spilara; þetta er einhvað sem ég þarf að bæta úr þegar ég kem heim um jólin, nenni ekki að gera það hér. Panos nágranni minn fór í dag, heim til sín og hann skildi eftir jógúrt handa mér og egg, þannig að heimfarir fólks koma sér að góðum notum. Reyndar fer enski nágranni minn líka af landi brott í Desember líka, en hún fer til Ástralíu; mig langar til Ástralíu. Ég þarf reyndar að fara til Írlands eftir áramót eftir að hafa lesið hvað Bristol krakkarnir borguðu fyrir miðana sína þangað. Það er ansi gott að vakna í Desember við það að sólin skín inn um gluggann!
Hérna er tengill, skemmtilegt atvik sem gerðist á ísland: link

November 2009

Mo Tu We Th Fr Sa Su
Oct |  Today  |
                  1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30                  

Search this blog

Galleries

Most recent comments

  • Til hvers að hafa bloggsíðu ef maður skrifar ekkert á hana? by Jakob on this entry
  • Ég elska og hata flest alla jafnt, hata samkynhneigða ekkert meira … by Marvin on this entry
  • Jaxi, þú ert þá á lífi! Ég hélt að þú værir farinn yfir móðuna mikl… by on this entry
  • Marvin, mér leiðist þetta hatur þitt í garð samkynhneigðra. Þú ert … by Jakob on this entry
  • a by m on this entry

Blog archive

Loading…
RSS2.0 Atom
Not signed in
Sign in

Powered by BlogBuilder
© MMIX